Málþing Bókabæjanna austanfjalls
Fimmtudaginn 12. nóvember verður haldið málþing í Ráðhúsi Ölfuss þar sem fjallað verður um hlutverk barnabóka í eflingu læsis.
Bókabæirnir austanfjalls vilja auka hróður barnabókarinnar og vekja athygli á mikilvægi barnabóka. Þingið er sjálfstætt framhald Barnabókahátíðar Bókabæjanna austanfjalls sem haldin var í september síðastliðnum. Inntak málþingsins er barnabókmenntir og læsi eða hlutverk barnabókarinnar í eflingu læsis. Spurningunum „af hverju erum við að þessu?“ og „af hverju þurfa börn að lesa?“ verður svarað frá ýmsum sjónarhornum.
Ókeypis er á málþingið. Veitingahúsið Meitillinn mun selja súpu í hléi sem kostar 1200 krónur.
Ráðhúss Ölfuss er að Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn.
Dagskrá:
Ólína Þorleifsdóttir kennsluráðgjafi skólaþjónustu Árnesþings stjórnar þinginu.
17:30 – Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra setur málþingið
17:45 – Margrét Tryggvadóttir bókmenntafræðingur: „Skipta barnabækur máli?“
18:00 – Gerður Kristný rithöfundur og ljóðskáld: „Bækur breyta heiminum“
18:20 – Hlé
Súpa frá Veitingahúsinu Meitlinum á 1200 krónur
18:50 – Lára Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO „Komdu með á hugarflug“
19:10 – Andri Snær Magnason rithöfundur
19: 30 – Spurningar úr sal og dagskrárlok